Aðvörun - afmæli - gifting - veisla - aftur.

Ágætu jörfaliðar!

Löngu giftu hjónin í Kvíaholti á Mýrum ætla að halda upp á afmæli húsfreyjunnar með pomp og prakt þann 18. ágúst næstkomandi. Af því tilefni er Jörfaliðum boðið að mæta, eta, drekka og vera glaðir fram eftir kveldi daginn þann. Í æðiskasti játaði svo undirritaður að giftast kerlu sinni aftur, nú að heiðnum sið, og fer sú athöfn fram fyrr um daginn framan við hús í norðankulda og trekki. Að sjálfsögðu er Jörfaliðum í sjálfvald sett hvort þeir mæti í þá athöfnina og eyði með okkur deginum öllum eða komi til áts og drykkjar þegar líður að kveldi.

Bis dann,

A og H 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ________________________________________________________

Andsk.... ég missi af öllum uppákomum á Brekkutorfunni í sumar!  Verð rétt ókomin frá Írlandi þegar bróðir heldur uppá stórafmælið og verð nýfarin til Finnlands þegar Kvíaholtshjón gleðjast með vinum. Nú væri gott að geta klónað sig!

Guðný. 

________________________________________________________, 15.5.2012 kl. 19:49

2 Smámynd: ________________________________________________________

Þetta fer á ,,tú-dú" listann, takkfyrirtakkkv. Fjóla Ásg

________________________________________________________, 19.5.2012 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband