Áramót Norðurlandsdeildarinnar

Áramótaskaupið Hér á Dalvíkinni draumabláu var veðrið til mikillar fyrirmyndar um áramótin. Eins og síðastliðin 23 ár vorum við í Sunnubrautinni á gamlárskvöld og var óvenju fjölmennt í ár og veislan fjölbreytt og maturinn afar ljúffengur að vanda. Matargestir voru 23 Jörfaliðar, aldursforsetinn amma Lilja og Björn Snær Atlason frá Hóli. Flestir lögðu eitthvað til veislunnar og hljómaði matseðillinn eitthvað á þessa lund:

Forréttir:  Grafin gæsabringa með Cumberlandsósu úr Þrastarhóli og sushi ala Dagný og Óli.

Aðalréttir: Hreindýr, villigæs, aligæs, aliendur (og smá hamborgarahryggur og kjúklingur fyrir þá sem ekki eru hrifnir af villibráð, gæs eða öndum;). Meðlæti voru waldorfsalat, Beggusalat, heimalagað rauðkál ala Lilja, maísbaunir og fleira.

Eftirréttir: Sherrydeserinn hennar Guju, ísterta og rjómi.

Miðnætur"snarl":  Grafin bleikja ala Úlfar Eysteinsson, grafinn lax ala Óli Gústa, ristað brauð og tilheyrandi sósur ásamt forréttaafgöngum.

Með þessu öllu voru borin fram eðalvín fyrir fullorðna og gos fyrir bílstjóra og börn.

Eftir matinn og áramótaskaupið færðu flestir sig út á tröppur og fylgdust með flugeldum og tertum fyrir marga tugi þúsunda springa í loft upp, en í Sunnubrautinni er alltaf sérstaklega mikið skotið upp, enda margar fjölskyldur samankomnar í mörgum húsanna í götunni. Páll Hlíðar stóð sig með sérstakri prýði þar sem hann tók að sér hlutverk Hjörvars Óla og aðstoðaði Sigga við að kveikja í sprengiþræðinum og fannst það ekki leiðinlegt. Rögnvaldur húsbóndi og annar karlpeningur sáu um sprengingar á meðan við stelpurnar dáðust að þeim, yngsta fólkinu fannst bara þægilegra að fylgjast með í gegnum gluggann Joyful.

Ég var dulítið upptekin við myndatökur eins og stundum áður og smellti einu myndbandi á youtube fyrir Hjörvar Óla, það gefur smá innsýn í ástandið í götunni á þessum árstíma: http://www.youtube.com/watch?v=TV0jJa5Rl-M.

 Eftir miðnættið fjölgaði í partíinu þegar systkini Ragga, þau Dúdda og Atli ásamt afkomendum kíktu inn. Dregin voru fram spil og var afar erfitt að slíta sig lausan þegar skynsemin sagði að nú væri kannski ráð að fara að koma sér í bólið, http://spilavinir.is/islensk-spil-1/island-opoly.html er sniðugt spil sem auðvelt er að gleyma sér í. Whistling

Að loknum þessum pistli vil ég óska öllum Jörfaliðum og öðrum vinum og ættingjum nær og fjær gleðilegs nýs árs með von um að það verði  hamingjuríkt í alla staði. Margt spennandi í farvatninu hjá okkur; utanlandsferð, námsleyfi, háskólanám o.fl.  

Ég skora á aðrar "deildir" Jörfaliðsins að skella inn smá bloggi og myndum - t.d. Skagafólk, Brekkuliðar, Hólmarar...koma svo!!

Guðný.


Jólakveðja

Jólakveðja frá fjölskyldunni í Ásvegi 1 á Dalvík Grin

http://sendables.jibjab.com/view/fiseNL0dfWGJCKUF?cmpid=jj_fb_self_holidays

 


Og svo er kominn desember!!

T image00012_1125679.jpg íminn bókstaflega æðir áfram - "time flies when you are having fun"! Ég looofaði Helgu frænku "norsku" að setja inn myndir frá skírn og lubba, er ekki bara bráðnauðsynlegt að henda hér inn myndum og fréttum annað slagið - svona uppá heimildagildið? 

Bríet Jökla Ólafsdóttir Ágústssonar var sumsé skírð í Minjasafnskirkjunni á Akureyri laugardaginn 3. desember og daginn eftir hittist Norðurlandsdeildin í laufabrauði í Þrastarhóli.   Alltaf gaman þegar Jörfaliðar hittast, sama hver "deildin" er. Halo

Nýtt myndaalbúm, Desember 2011.  Svo má gjarnan bæta í albúmið myndum frá fleiri uppákomum í öðrum deildum Jörfaliðsins Wink


Sómahjónin og Eiríkshús

Datt í hug að setja þessa mynd líka hérna.

steini.jpg


Athugun.

Sæl veri þið!

Ég var bara að athuga hvort ég kynni ekki að koma mér hér inn. Ég sé að svo er W00t 

Jörfaliðar !....Bestu kveðjur, Gunna.


Haustferð á heimaslóðir

Við hjónakornin fórum í stutta haustferð austur um síðustu helgi. Vöknuðum í unaðslegu veðri á laugardagsmorguninn, þannig að ég var komin út með myndavélina fyrir allar aldir og náði að festa morgunroðann og ýmislegt annað á "filmu".

Gamli Jörfi tók á móti okkur hlýr og notalegur, Eiki hafði tæmt músagildrurnar deginum áður og fékk þrjár, eina í búrinu og tvær í skúrnum.  Það var afar erfitt að yfirgefa sælureitinn, ætlum að reyna að komast aftur austur í vetur. 

Sendi pistil og myndir á Borgarfjarðarvefinn og má sjá það hér: 

http://www.borgarfjordureystri.is/heim/moya/news/gudny-ola-a-heimaslodum-5.-6.-nov-2011/

 Guðný.


Grúskað í gömlu dóti

                Dimmidalur eftir Ólaf J. Bergsson

Ekki er þar allt sem sýnist

efst uppi í fjallanna reit

Því barnið veit hvert um það hérna

að heil býr þar álfafólks sveit.

Ég hugsaði oft um það ungur:

"Hvar ætli þeir muni slá ?

og afréttin eigi að vera,

og ærnar og hestarnir þá".

Og svo er hann Dimmidalur

svo draugaleg bjarga-krá

sem hamrar og hengiflug lykja

að hroll í sig smalarnir fá.

Í björgunum syðri hér situr

þó sýslumaðurinn

en hinsvegar hömrunum ræður

huldufólks-presturinn.

Og soninn, sinnhvorn þeir áttu

siðgóða háttprúða menn,

Þeir völdu sér víf niðri á "Hvoli"

sem vottar hún, þjóðsagan enn.

 

                        Ó J B  25. janúar 1904

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Óli Gústa og Hjörleifur Helgi í boði náttúrunnar

Flottir frændur :) Var í útgáfuteiti fyrr í kvöld, þar sem fagnað var útkomu nýjasta eintaks af tímaritinu "Í boði náttúrunnar". Blaðið er vandað og fínt í alla staði, en þó finnst mér blaðsíður 69-75 bera af, en þar sýnir meistarakokkurinn Ólafur Ágústsson takta sína. Hjörleifur stóð sig afar vel sem staðarhaldari í Ensku húsunum þar sem eldamennskan fór fram, og fékk að vera með meistarakokknum á mynd Tounge.

VETUR í boði náttúrunnar - mæli með því!  Blaðinu fylgir ókeypis gjafaáskrift sem gildir til 15. desember!

Guðný.

 

http://ibodinatturunnar.is/


Nýjasti Jörfaliðinn

Olafsdottir Óli og Lára eignuðust yndislega stelpu 12. október. Það er auðvitað búið að birta fréttina á Facebook og setja þar fullt af myndum. Jörfavefurinn verður samt að sjálfsögðu að vera með!

Stelpan er hraust og falleg og dafnar vel. Hún gengur undir ýmsum nöfnum; "Litla skessan" er helsa gælunafnið sem foreldrarnir nota, en ömmu og afa finnst "Yndisleg Ólafsdóttir" langbest! Smile

Við eru óskaplega stolt af fyrsta barnabarninu og þessi reynsla er hreint ótrúleg! Henrik okkar er auðvitað afa- og ömmustrákurinn, en nú er komin systir og hann stendur sig rosa vel sem stóri bróðir!

Bestu kveðjur, Gústi og Magga.

Það var málaður tankur

P1070279 Lengi hefur staðið til að mála olíutankinn við Gamla-Jörfa. Fyrr í haust klæddu Gústi og Geiri sig í málningargallann og kláruðu verkið!

Gústi hafði keypt sérstaklega valið Kraftlakk og það átti að vera rautt, í sama lit og þakið á Jörfa. Þegar dósin var opnuð kom í ljós að lakkið var vissulega rautt.....alveg ELDRAUTT! En hvað um það, tankurinn var skrapaður, pússaður og málaður! 

Einhver giskaði á að sennilega hefði verið vissara að láta fara fram mat á umhverfisáhrifum! Svo svakalega þykir tankurinn rauður. Nú er hann notaður sem innsiglingarviti fyrir Austurland að Glettingi! Whistling

Það eru málningarmyndir í myndaalbúminu. http://jorfalidid.blog.is/album/Tankurinnmaladur/


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband