6.3.2012 | 12:56
Meira af hátíðarhöldum.
Ágætu Jörfaliðar. Jörfungar?
Frændi okkar ágætur býður upp á Jörfaliðspakka á hótel Álfheimum, 4000 kr nóttin í uppábúnu rúmi. Það er ári vel boðið svo ekki sé meira sagt. Þess utan ætlar hann að leigja okkur matsalinn á laugardagskveldinu til að halda þar kvöldvöku ef okkur sýnist svo, sem ég held að okkur sýnist. Það sýnist mér. Hver bókar fyrir sig hjá Vidda, tóm hamingja.
Fyrir hönd nefndar, Hjörleifur Helgi Stefánsson, nefndarmaður.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Komin í hús hjá Vidda frænda mínum. Það verður gaman að prófa það!
Guðný & Co.
________________________________________________________, 12.3.2012 kl. 19:24
Hólabrekkuhalinn fékk inni í Álfheimum fyrir nokkru síðan.
Gunna.
________________________________________________________, 13.3.2012 kl. 21:38
Við Akraselir verðum í tjaldvagni.
Kv/ÓA
________________________________________________________, 14.3.2012 kl. 10:26
Fjóla... bókaðir þú ekki örugglega gistingu fyrir mig og mína??
kv. Magga litla systir...
________________________________________________________, 14.3.2012 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.