Hvaeredda, er ekkert í fréttum ?????

Mig langar svo í einhverjar skemmtilegar fréttir !!!!  Kv. Guja.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ________________________________________________________

Það hlýtur nú að vera Guja mín, kannske síst hér hjá gamalmennunum :)

Það sem átti að vera skemmtilegast hjá okkur um þessa helgi var ferð með eldri borgurumtil Grenivíkur. Þeirri ferð var frestað vegna veðurs. Hér sér ekki út úr augum,blindbylur í allan dag.

En ...... hér er samt skemmtilegt !! Kv. Gunna.   

________________________________________________________, 2.11.2012 kl. 14:29

2 Smámynd: ________________________________________________________

Skemmtilegu fréttirnar hér eru þær að í gærkvöldi fattaði ég í fyrsta skipti að elda kjötsúpu í ofnpotti inni í ofninum alltsvo.
Hún var þar lengi dags, smakkaðist óvenju vel...og ég slapp með óbrennda tungu. Ég læt þess sérstaklega getið fyrir Helgu Öru.
Ég skil ekki afhverju í ósköpunum ég hef ekki gert þetta fyrr. Hef eldað ótaldar gúllassúpur á þennan máta en ekki hugkvæmst að gera þessa gömlu góðu svona.

Þið þurfið ekki að deila því með mér ef að það eru ,,allir" búnir að gera þetta í svona ,,mööörg" ár.

Kjötsúpukveðja, Fjóla Ásg.

________________________________________________________, 4.11.2012 kl. 17:28

3 Smámynd: ________________________________________________________

Já - sko - alltaf gott að segja frá.  Ég hef t.d. aldrei prófað að elda kjötsúpu í ofni   Hér er allt á kafi í snjó, 7 stiga hiti í dag, en verður 7 stiga frost í kvöld (ef veðurspáin stenst). Kv. Guja.

________________________________________________________, 5.11.2012 kl. 11:11

4 Smámynd: ________________________________________________________

alltaf eitthvað skemmtilegt - fyrst stórhríð sem er skemmtileg, svo matarboð með öldnum móðursystrum sínum, sem var skemmtilegt, svo moka upp bílinn sinn... sem er ekki svo skemmtilegt, svo laufabrauð framundan sem er svaka, svaka, svaka skemmtilegt

Bráðum má fara að hlusta á jólalög og baka og undirbúa. Það er sko bara eintómt skemmtilegt framundan!!

kv. Magga Ásg.

________________________________________________________, 7.11.2012 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband