10.8.2009 | 13:06
Fréttir af noregsförum.
Nú fer að styttast í heimferð hjá okkur Óla, Sigrúnu og Ými. Við erum búin að vera hjá Helgu og Jóhanni og Vidar í tvær vikur og sú síðasta að hefjast. Hér er búið að rigna sem aldrei fyrr, en góðir dagar með sól og hita upp að 27 gráðum á milli. Þá daga höfum við notað til skoðunarferða og hefur dagskráin verið skipulögð af Helgu og Vidar. Þau hafa farið með okkur víða m.a. til Svíþjóðar. Áhugaverðir bæir og staðir hafa verið heimsóttir og söfn skoðuð. Dagurinn í gær var tekinn rólega og var foreldrum Vidar boðið til veislu að íslenskum sið; lambalæri með rauðkáli og grænum baunum í bland. Frændurnir Jóhann og Ýmir eru nánast sem einn og hundurinn fær að þvælast með.
Þetta hafa verið yndislegir dagar sem seint gleymast. Við systkinin höfum ekki verið svo marga daga saman í fríi síðan 1974 og er allt eins og áður, nema hvað við höfum ekki slegist þessa dagana.
Kv/ÓA
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:52 | Facebook
Athugasemdir
Gaman að heyra Óli. Þið systkinin hljótið að hafa rifist eitthvað að minnsta kosti?!
Vertíðin er búin hjá okkur í bili og gestahúsið á lausu! Guðný.
________________________________________________________, 10.8.2009 kl. 16:56
Gaman að fá fréttir af ykkur, greinilega mikið búið að gera og skoða.
Bestu kveðjur til ykkar allra Magga og Gústi
Magga (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 20:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.