24.7.2009 | 15:32
Já komdu í fjörðinn, því fjörið er hér og upplifðu ævintýr.....
Mikið dæmalaust er nú alltaf gaman og gott að vera í Gamla Jörfa. Engar stíflur að stríða manni, hvorki rit-, meltingarfæra-, eða göngustíflur.
Fórum í heljarinnar svaðilför með Hjörleifi Helga í alls kyns veðri í gær; hagléli, slyddu, sól, vindi, roki, logni og rigningu. Gengum upp í Dimmadal, síðan stystu leið upp á Byrgisfjallið og fetuðum okkur eftir fjallarindum NIÐUR á Hvolsmælinn. Ætlunin var sumsé upphaflega að "skreppa" upp á Hvolsmælinn! Ída Guðrún og Dagur lögðu af stað með okkur en sneru við á Dimmadalnum. Hvílum lúna fætur í dag og leyfum hælsærunum að gróa.......
Nú eru um 17 manns í Gamlanum, Siggi stendur við eldavélina og mallar stóran, stóran pott, fullan af ketsúpu. Veðrið er bara fínt, skýjað og frekar kalt, smá gola en í góðu lagi. Sólin skín glatt í sálu og sinni.
G+M
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Mikið er gott að heyra þetta með sólina, þetta kalla ég sko jákvætt hugarfar
Njótið ykkar í Gamlanum, ég sakna ykkar. Guja syss/frænka.
________________________________________________________, 24.7.2009 kl. 15:37
Ég var rétt í þessu að hlusta á Heiðar ,,minn" á rás 2, þannig að það vantar ekki mikið á að maður rúlli af stað til ykkar. Þetta verður bara frábært. Ég mun hlusta á útsendinguna annað kvöld og reyna að hafa það eftir atvikum.....eins og sagt er.
Saknaðarkveðjur í Gamla (hinir meiga eiga rest)
Fjóla Ásg
________________________________________________________, 24.7.2009 kl. 17:24
Þetta lýst mér vel á! Ég hringdi í Gamla-Jörfa í dag og lýsingin var: Sumir eru sofandi, sumir eru að fá sér að borða, sumir eru búnir að borða, einhverjir eru að fá sér bjór, semsagt eðlilegt ástand;) Hlakka til að hitta ykkur í næstu viku!
Kv. Gústi bróndi. (lesist: bróðir og frændi)
________________________________________________________, 24.7.2009 kl. 18:08
Held bara að ég komi með Fjólu syss einhver verður að hjálpa Sigga greyinu að elda, eða allavega horft á hann elda ,eða bara fengið mér bjór .
Vonandi hafa allri það gott sendi ástar og saknaðar kveðjur með laginu "Senn kemur vorið sunnan að.
kv Helga Sesselja 'Ásgeirsdóttir ( systir Fjólu og Möggu )..........dóttir Gunnu og Geira.
________________________________________________________, 24.7.2009 kl. 23:44
Við erum með ykkur í anda, sitjum hér og hlustum á Þursaflokkinn í beinni á rás 2. Bestu kveðjur í Gamlann.
Akraselir (IP-tala skráð) 26.7.2009 kl. 00:04
Eru engar Bræðslufréttir.
Magga (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 15:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.