Mikið að gerast fyrri hluta sumars 2009 – dagbókarbrot Guðnýjar.

Golfhjónin eftir Landsmótið 09

Strax eftir skólalok í vor, 9. júní, var farið í sumarbústað á Flúðum ásamt Guju og Ragga.  Ekki var farin stysta leið í bústaðinn, heldur byrjuðum við á því að keyra austur fyrir, til Fáskrúðsfjarðar og heimsækja tengdó og hitta frændfólk Sigga frá Færeyjum. Við gistum fyrstu nóttina í fríinu í hjólhýsinu þeirra Adda og Lindu, en það líkist helst þriggja stjörnu hóteli, mjög flott og vel útbúið. Um hádegið daginn eftir komu svo Guja og Raggi og þá lögðum við upp í ferðina til Flúða. Við keyrðum rólega suðurfirðina, stoppuðum í steinasafni Petru í Stöðvarfirði, borðuðum hádegismat á Café Margréti á Breiðdalsvík, fengum okkur kaffi í Löngubúð á Djúpavogi, versluðum í Samkaup á Hornafirði og kvöldmatur var etinn á Kirkjubæjarklaustri. Við vorum komin í bústaðinn rétt fyrir miðnættið 10. júní.  Þar dvöldum við síðan næstu vikuna; spiluðum golf og þvældumst um nærliggjandi héruð á daginn, elduðum góðan mat og enduðum daginn gjarnan í heita pottinum. Mikið dásemdarlíf. Miðvikudaginn 17. júní var lagt af stað heim með viðkomu í Hótel Valhöll á Þingvöllum(blessuð sé minning hennar) þar sem við fengum okkur íslenska kjötsúpu.

Eftir að hafa tekið upp úr töskunum og þvegið fötin mín, pakkaði ég aftur niður og á föstudagsmorgun var lagt upp í fimm daga kórferð um Vestfirði með Samkór Svarfdæla. Sú ferð var mjög vel heppnuð, við sungum á Bolungarvík, Þingeyri og Reykhólum, gistum í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, á Núpi við Dýrafjörð, í Hótel Látrabjargi í Örlygshöfn og Hótel Bjarkarlundi. Vestfirðir sýndu sínar bestu hliðar, við fengum mjög gott veður og allt í plús.

Við komum heim úr þessari ferð þriðjudaginn 23. júní.  Daginn eftir hófst síðan meistaramót GHD sem við hjónin tókum bæði þátt í, og lauk því ekki fyrr en á laugardaginn 27. júní. Vikan þar á eftir var nokkuð róleg hjá minni, naut góða veðursins í botn;  gönguferðir  fyrri partinn, golf seinnipartinn. Ég tók þátt í Gönguviku Dalvíkurbyggðar, fór í grasagöngu frammi í Klængshóli og fræddist um nýtingu jurta, eins fór ég í Strandgöngu þar sem gengið var með stórskemmtilegri leiðsögn frá Árskógssandi til Hauganess þar sem endað var í sjávarréttaveislu á bryggjunni. Við Magga gengum upp í Lokugarnir einn daginn og upp að Kofa á Böggvisstaðadal annan dag, síðan fékk ég mér góða gönguferð í gær, gekk upp á Melrakkadal. Við sáum um veitingasöluna í golfskálanum frá mánudeginum 6. til fimmtudags  9. júlí, en föstudaginn 10. og laugardaginn 11. vorum við hjónakornin að keppa í golfi á Landsmóti Ungmennafélaganna.   Veðrið á Dalvík og nágrenni hefur verið stórkostlegt síðustu vikur, sól, logn og hiti 15-20° dag eftir dag.

Við fengum góða gesti á föstudaginn var, þegar Steini, Bogga, Inga og  Jónas komu í heimsókn og voru hjá okkur í tvær nætur; Bogga keppti í 10 km. hlaupi á Landsmótinu á laugardaginn var og stóð sig með sóma. Við notuðum síðasta heita kvöldið í bili og grilluðum lambalæri og buðum í veislu úti á pallinum og stungum okkur  síðan í pottinn áður en skriðið var í ból.

Nú ætla ég mér að taka það rólega hér heima fyrir næstu dagana;  lesa og slappa af, enda sýnist mér veðrið ekki til annars, norðanátt í kortunum svo langt sem augað eygir!

Síðan er það Borgarfjörðurinn besti eftir næstu helgi, þar ætlum við að vera í viku til 10 daga, fer eftir ýmsu hve lengi verður stoppað. Set í myndaalbúm sitt lítið af hverju sem tengist þessari sögu minni.

Kveðja, Guðný.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir Guðný.

Það er greinilegt að mikið og skemmtilegt hefur verið að gera hjá ykkur í sumar.   Því miður höfum við ekki hist á þessum þeytingi ykkar en vonandi verður bragarbót þar á síðar í sumar.  Hvað hangir þarna framan á ykkur hjónum ?  Þú nefnir ekki þátttöku ykkar á landsmótinu, eru þetta kannski viðurkenningar þaðan ?

Það er gaman að fá að fylgjast með ykkur.  Fleiri svona fréttir. 

Fréttir af okkur koma síðar.

Akraselir. 

Óli Ara (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 23:54

2 Smámynd: ________________________________________________________

Það hanga verðlaunapeningar um hálsinn á golfhjónunum....kvennaliðið lenti í öðru sæti (fjögur lið kepptu) á Landsmótinu, en karlaliðið í því þriðja, karlaliðin voru fleiri og meiri barátta þar - að sögn .  Ég er farin að sakna þess að sjá ekki Akraselina, við verðum að reyna að gera bragarbót á því seinna í sumar!

________________________________________________________, 15.7.2009 kl. 01:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband