27.4.2009 | 22:11
Unglegur er hann!!
Rögnvaldur Skíði er sextugur í dag. Ég og mín fjölskylda óskum honum hjartanlega til hamingju með þennan áfanga í lífinu, það eru margir sem vildu óska þess að vera jafn unglegir og hressir og hann er!
Afmælisbarnið gerði heiðarlega tilraun til þess að stinga af og láta lítið fyrir sér fara um helgina, leigði sér bústað á Illugastöðum og ætlaði að vera þar í miklum rólegheitum með eiginkonu, börnum og barnabörnum. En honum varð nú ekki kápan úr því klæðinu, því eiginkonan lak út fréttunum og skelmingssystkinin Guðný og Gústi ásamt mökum laumuðust í humátt, leigðu sér líka bústað og gerðu innrás á föstudagskvöldið og kyrjuðu brag til afmælisbarnsins við mikinn fögnuð viðstaddra
Til hamingju með daginn Raggi minn!!
Eins og sést á meðfylgjandi mynd, fékk afmælisbarnið góða aðstoð unganna sinna við að taka upp pakkana og lesa á kortin!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Hjartanlega til hamingju með daginn, ,,sæti''. Kv. Fjóla Ásg. og kó
________________________________________________________, 27.4.2009 kl. 23:27
60tugur hummm...en sumir eru bara alltaf eins er það ekki , allavega til hamingju með afmælið elsku Raggi kveðjur Helga sess,Nonni ,Unnur Eyrún ,Grétar Njáll og Arnbjörn Ingi

________________________________________________________, 27.4.2009 kl. 23:49
Best að senda kallinum kveðju áður en hann verður sextíuogeins.
Til hamingju með afmælið elsku Raggi.
Akraselir
________________________________________________________, 5.5.2009 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.