2.5.2008 | 08:38
Og allir komu þeir aftur...
..eða allavega held ég það örugglega. En í gær lögðu Rögnvaldur, Atli og Dagur A. upp í ferð austur í Gamla til að setja upp hitakútinn ógurlega, fyrir voru í Jörfa Gunna og Geiri. Áður en þeir lögðu af stað voru skeytin að sjálfsögðu tekin og niðurstaðan varð að best væri að drífa sig strax af stað því veðurspáin væri síðan bara versnandi og hitakúturinn sá arna yrði hreinlega að fara að komast upp.
Þeir héldu því af stað en fregnuðu það svo á miðri leið að Vatnsskarðið væri nú ófært, áfram héldu þeir nú samt því þeir eru á jeppa! Begga var svo tekin með á Egilsstöðum, líklega hafa þeir ætlað að nota hana til að troða slóð yfir skarðið. En hún dugði ekki til, jeppinn komst ekki nema rétt upp fyrir Unaós (held ég), þar snarar Atli heljarmenni og göngugarpur sér út úr jeppanum og heldur fótgangandi yfir Vatnsskarðið með verkfæratöskuna en Rögnvaldur og Dagur snúa til baka með Beggu með sér.
Niðri á Borgarfirði var Geira farin að leiðast biðin eftir "hitakútsuppsetningarmönnunum" þannig að hann hóar á hjálp frá alvöru jeppamanni, Kára Borgari og þeir leggja upp í björgunarleiðangur. Eftir langa leit ákveða þeir að "hitakútsuppsetningarmennirnir" hljóti að hafa snúið við því að ekkert bólar á þeim og ákveða því sjálfir að snú við. Sem betur fer fengu þeir boð um það rétt í því að þeir voru að fara að snúa til baka, að á Vatnsskarðinu væri fótgangandi maður með verkfæratösku ógurlega og þeir beðinir í guðs bænum að finna hann áður en þeir fari til baka, sem þeir og gerðu.
Á teljaranum á Vatnsskarið er hægt að sjá að um hálffimmleitið í gær fóru þrír bílar um Vatnsskarð, þetta var í raun og veru bara einn bíll...
En eftir því sem ég best veit eru Raggi, Dagur og Begga núna á leið onyfir - það er búið að moka skarðið.
Magga Á (sem fór ekki með)
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég skil ekki af hverju Atli notaði Beggu ekki sem "sherpa". Hún hefði getað haldið á verkfæratöskunni.
ÓA.
________________________________________________________, 2.5.2008 kl. 08:49
Já, það hefði líka mátt nota hana sem sleða (þ.e.a.s. verkfæratöskuna)
Sigrún (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 10:55
Frést hefur að sum hjörtu hafi slegið alveg út í rifbein á tímabili.
________________________________________________________, 2.5.2008 kl. 11:44
Er ekki komið skemmtiatriði fyrir ættarmótið?
Ég veit að vísu um að sú sem beið í Gamla Jörfa hló ekki...amk ekki í gær. 
Kv. Fjóla
________________________________________________________, 2.5.2008 kl. 11:58
Hún sat með kíkinn og fylgdist með akandi og gangandi umferð fyrir Landsendann
Kv. MÁ.
________________________________________________________, 2.5.2008 kl. 12:28
Ég er alveg sannfærð um að vatnið í hitakútnum kemur til með að vera með gullflögum. Við verðum gulli slegin eftir böðin í framtíðinni. Þegar svona mikið er lagt á sig fyrir hitakút þá skilar það sér í einhverju. Kv. Ása Björk
________________________________________________________, 2.5.2008 kl. 13:14
Ég hef setið hér með fáránlegt glott á andlitinu hvað eftir annað í dag þegar ég sé Alta og "sherpann" fyrir mér......kv. Fjóla.
________________________________________________________, 2.5.2008 kl. 16:11
Var að tala við Gamla-Jörfa. „Sherpinn“ situr og klappar kútnum og telur hann afbragðs tæki! Nú er 75 gráðu jafnhiti á heita vatninu í Jörfa og strax farið að leggja drög að heitavatnslögn í veginn yfir Vatnsskarð. En að öllu gamni slepptu, þá hefur hér verið unnin mikil hetjudáð sem ber að þakka! Ég legg til að „hitakútsuppsetningarmennirnir“ verði heiðraðir sérstaklega á komandi ættarmóti!
Kv. Gústi.
________________________________________________________, 2.5.2008 kl. 19:37
Ohhh, þetta er bara yndislegt. Akraselir hlakka mikið til næstu dvalar í Gamla-Jörfa með tilheyrandi sturtuferðum og uppvöskunarskemmtilegheitum og öllu tilheyrandi.
Sigrún (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 19:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.