Afmæli Gamla Jörfa sumarið 2007.

Sænlú.

 Ég  setti nokkrar myndir í albúmið undir Afmæli Gamla Jörfa 2007.

Ég veit að það voru mun fleiri myndavélar á lofti á sama tíma.  Gaman væri að fá fleiri myndir í albúmið.

Kv./ÓA.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ________________________________________________________

Gaman að þessu. Ég á af einhverjum ástæðum nefnilega ekki myndir frá þessu. Ég er búin að kaupa miða á tónleikana 13. okt. í Laugardalshöllinni - smá plástur.

Kv. Fjóla - fjarverandi 

________________________________________________________, 8.9.2007 kl. 10:10

2 Smámynd: ________________________________________________________

Takk fyrir þetta Óli. Svo gaman að skoða og rifja upp, en samt alveg merkilegt hvað maður getur verið ljótur á myndum. Ætli Fjóla systir hafi kannski verið að meina að ÉG væri ljóta systirin?? Ne..... það getur bara ekki verið  

Annars fór ég til Akureyrar áðan að hitta Helgu systir, þau eru að hjálpa Unni Jóns að koma sér fyrir í gamla Höfners-húsinu (held örugglega að mamma hafi sagt það), þar ætlar hún að leigja í vetur og stunda nám við Myndlistarskólann. Gaman hvað ættingjarnir eru að týnast norður, Gústi og Unnur... og Gústi... og Unnur.... og...Gústi....... já og svo hljóta Magga og Bjarki og Steinar og Óli líka að koma. kv. Magga Á.

________________________________________________________, 8.9.2007 kl. 17:06

3 Smámynd: ________________________________________________________

Já, mér finnst líka gaman að því hvað Jörfaliðar eru að þróast í  listrænu áttina!  Frábært að fá Unni á Norðurlandið.  Talandi um  listina; Óskar Jökull er á leið til Danmerkur um næstu helgi og verður í Musik- og Teaterhöjskolen í Toftlund  fram að jólum, Óttar er á myndlistarbraut við VMA, Hjörvar Óli leikur Arnald (yngri) í uppfærslu Leikfélags Dalvíkur á Sölku Völku þar sem Ída Guðrún leikur Sölku sjálfa, á yngri árum.  Skora á Jörfaliða að fjölmenna á sýningu hjá LD í haust!
Nú, svo hef ég alltaf haft mjög góða matarlyst....

Fórum á tónleika með Kristjáni Jóhannssyni og mömmu hans í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag, held Kristján hljóti að vera í 
Jörfaliðinu!  Allavega syngur hann helv... vel!  ;)

kv. Guðný.

________________________________________________________, 9.9.2007 kl. 22:18

4 identicon

Gaman að þessum listagenum

Hvenær hefjast svo sýningarnar hjá LD? 

Akraselir (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband