17.3.2007 | 17:29
Hjá lækninum
Guðný fór í læknisskoðun á heilsugæslustöðina. Læknirinn byrjaði á að spyrja hversu þung hún væri og Guðný sagðist vera 55 kg. Læknirinn lét hana þá stíga á vigtina sem sýndi 94 kg. Næst spurði læknirinn hversu há Guðný væri. 168 cm svaraði hún. Læknirinn bað hana að standa upp við vegg og mældi hana með þar til gerðu málbandi. Niðurstaðan var 155 cm. Því næst mældi læknirinn blóðþrýstinginn hjá Guðnýju og tilkynnti henni að þrýstingurinn væri allt of hár. Nú var nokkuð fokið í sjúklinginn sem sagði æst í bragði: "Já ertu eitthvað hissa á því. Þegar ég kom hingað var ég há og grönn og núna er ég orðin lítil og feit !"

Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.