Ekkert hreindýr fyrir mig.

Mikið er veröldin grimm. Við pabbi vorum búnir að plana mikinn leiðangur í hreindýraveiði í haust, en nei nei, ekkert dýr.

Heimska lotto kerfi hjá umhverfisstofnun, það væri nær að láta menn kveðast á um veiðileyfin, eða glíma.

Kveðja - Óli Stef.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ________________________________________________________

Óli, ekki láta hugfallast.....er ekki alltaf dregið aftur þegar kemur í ljós hverjir geta ekki borgað, eða eitthvað svoleiðis?

Getið þið annars ekki farið í rjúpnaleiðangur í haust í staðinn?

Baráttukveðja,

Guðný.

________________________________________________________, 20.2.2007 kl. 12:55

2 Smámynd: ________________________________________________________

Kæri veiðimaður!
Atli Dagsson       

           
Þú hefur fengið úthlutað hreinkú á svæði 3.

Óli.... pósturinn hefði þá litið svona út EF þú hefðir fengi úthlutað.... Atli fékk sko nefnilega - aftur.   Var þetta ljótt af mér? nei, nei ekki svo..... allavega ætla ég alveg að hætta að spara og geyma hreindýrakjötið sem ég lúri enn á og fara og gúffa því í mig til að eiga pláss fyrir næstu kú - kýr... æi belju bara. En Óli, endilega komdu bara í mat og ég skal elda handa þér HREINDÝR...  Kv. Magga 

________________________________________________________, 20.2.2007 kl. 17:15

3 Smámynd: ________________________________________________________

Já já allt í lagi Magga, en ég er nú bara búinn að dissa þetta sker og á leiðinni til Grænlands á veiðar. Þar eru tarfarnir 200 kíló+ og með gullbryddingar í risastórum hornunum. Síðan skýtur maður Ísbjörn í leiðinni og saumar pels handa konunni. Túrinn ætla ég svo að enda á því að fanga náhval með berum höndum og gera frjósemislyf úr tönninni sem ég sel svo til Gumma í byrginu fyrir stóra peninga.

En til hamingju með kusuna. Kv. Óli Stef.

________________________________________________________, 20.2.2007 kl. 19:28

4 Smámynd: ________________________________________________________

MOHAHAHA.... góður! Og líst mér mjög vel á þessa veiðiferð - ef hornin eru í alvöru gullbrydduð, þá endilega rífðu eitt af flottum tarfi og færðu mér - þarf ekki allan hausinn. Og bara svo að þú vitir það, þá er náhvalsspik étið með frosnum krækiberjum þarna í Grænlandinu, en þau getur þú nú kannski týnt á Borgarfirði  Nú og svo er ég reyndar afar fegin að þá sé hvorki glímt né kveðist á um þessi hreindýraleyfi.... er ekki viss um að þá fengist leyfi hér á bæ. Kv. Magga Á.

________________________________________________________, 21.2.2007 kl. 08:19

5 Smámynd: ________________________________________________________

Kannski að maður fari að senda ínn ósk um hreindýraveiðileyfi - svona eins og með lóðirnar - þá sækja heilu ættirnar um ef einn vantar lóð. Látið mig bara vita og ég sæki um.

Kv, Fjóla (sem fær kjötið bara í búðinni....)

________________________________________________________, 21.2.2007 kl. 15:22

6 Smámynd: ________________________________________________________

Sko Óli minn... Grænland, það er málið. Ég vil líka gullhorn eins og Magga.

Kv, Ása Björk 

________________________________________________________, 22.2.2007 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband