Ættfaðirinn 98 ára í dag

Allir mættir...nema Stebbi!Já, gamli maðurinn Óli Gústa hefði orðið 98 ára í dag.  Mikið rosalega verður gaman eftir tvö ár, ég er smeyk um að við þurfum að búa til nefnd í kringum aldarafmælið!!  Hvernig væri til dæmis að fjölmenna á VOX og fá nafnann til að kokka ofaní þá Jörfaliða sem mæta 7. september?  Nei, bara hugmynd....

Afmæliskveðja,

Guðný - yngst og minnst...og frekust?

Ps. Inga svaf og Stebbi var úti  Sideways


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ________________________________________________________

Fallega fólk

Kv. Magga - sem brosir enn hringinn eftir góða helgi.

________________________________________________________, 8.9.2010 kl. 11:09

2 identicon

Góðan dag og takk fyrir síðast! Mikið eruð þið myndarleg á myndinni.

Ég hef eytt síðustu dögum í að leita að lykli sem var í smekklásnum á hurðinni inn í dósaherbergið/geymsluna/bjórískápinn. Við tókum eftir því á sunnudagseftirmiðdegi að hann vantaði þegar Eyjólfur Ágúst fór þar inn og lokaði á eftir sér... beið svo meðan mamman tróð sér í gegnum gluggann til þess eins að lenda í kuðli á frystikistunni honum til mikillar skemmtunar!

 EN, allavegna, þá má leita í vösum og skjóðum að litlum lykli sem hvarf líklegast á sunnudeginum. Lilja Berglind.. er Palli nokkuð með hann í vasanum?

Bestu kveðjur og takk fyrir helgina enn og aftur, þetta var alveg frábært! Maður hlakkar bara til að fá einhverjar myndir inn á síðuna úr partýinu.

Kveðja,

Anna Dröfn.

Anna Dröfn (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 12:59

3 identicon

Já.....Tannlæknisófétið....ég er ekki með Jörfalinga tennur.

Gunna (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 15:21

4 identicon

Anna, ertu að segja að börnin hennar Lilju séu óþekk?

HHS

Hjörleifur (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 18:55

5 Smámynd: ________________________________________________________

Anna Dröfn hvað meinarðu eiginlega ??? Þó menn éti epli frá túristum er ekki þar með sagt að menn yfirtaki heilt forðabúr !

...Ég skal samt leita í öllum vösum

Bestu kveðjur,

Lilja

________________________________________________________, 10.9.2010 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband